Glissando

Aðventa og jól

Glissando

Tónlist fyrir hátíðarnar

Sex meðlimir Glissando standa á sviði með hljóðfærin sín, strengi, flautu og klarinett, og jólaljós í bakgrunni.

Við erum tónlistarhópurinn Glissando sem samanstendur af 6 hljóðfæraleikurum; fjórum strengjum, flautu og klarinetti.

Við erum allar við það að ljúka framhaldstónlistarnámi úr Menntaskóla í tónlist og stefnum flestar að frekara tónlistarnámi í erlendum listaháskólum eftir útskrift.

Þessi jólin ætlum við að bjóða fyrirtækjum og veitingastöðum upp á lifandi tónlist þar sem við spilum klassísk jólalög og komum með hátíðlega jólastemningu!

Glissando hentar vel fyrir jólahlaðborð, jólaveislur fyrirtækja, viðburði í verslunum, móttökur og aðra viðburði þar sem óskað er eftir notalegri jólastemningu og lifandi tónlist.

Hér er hægt að bóka Glissando. Veljið hversu lengi þið viljið bóka hópinn og hvenær!

Þrjár úr Glissando á sviði við flygil skreyttan jólaljósum, tvær með fiðlur og ein með klarinett.